Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Ætlar ríkisstjórnin að láta lítillækka íslensku þjóðina meir en komið er?

Það myndi ganga alveg fram af mér ef Bretar sinntu eftirliti hér á landi eftir allt sem á undan er gengið. Fór það eitthvað fram hjá ríkisstjórninni að Bretar stimpluðu okkur hryðjuverkamenn. Eiga þeir síðan að vernda þessa hryðjuverkamenn. Ef við þörfnumst einhverrar verndar í dag þá er það gegn BRETUM. Ég efast um að það séu margir hér í þjóðfélagin sem að vilji þetta. Ætlar ríkisstjórnin að láta lítillækka íslensku þjóðina meir en komið er?


Hin góðu gildi

Ég var að horfa á Sjálfstætt fólk þar sem Vigdís Finnbogadóttir var viðmælandi.  Ég hef verið eins og svo margir í þessu þjóðfélagi ýmist reið eða döpur yfir ástandinu. Einnig hefur hluti af mér verið hálffeginn að þau gildi sem hafa verið í hávegum höfð hafi orðið gjaldþrota því að við vorum að tapa hluta af okkur. Samhugur með öðrum var á undanhaldi og þeir sem áttu ekki peninga eða flotta hluti voru einfaldlega það sem sem sagt er á góðri íslensku "Loserar".

Það var sem talað úr mínu hjarta þegar hún sagði að við ættum að hugsa um það sem við eigum, trúa á það sem við getum og hugsa um hver við erum. Vigdís sagði að við þyrftum að staldra við.

Hún minntist á eins og við vitum öll að við hefðum gleymt okkur undanfarið á kostnað þess sem hún telur hin góðu gildi.  Nú stæðum við á krossgötum og þyrftum að átta okkur á því í hvaða umhverfi við vildum að æskan okkar ælist upp í. Við hefðum gleymt okkur dálítið í dótakassanum. Samstaða og umhyggja væri það sem gilti núna.


Höfundur

Kristín Þórarinsdóttir
Kristín Þórarinsdóttir
Höfundur er þjóðfélagsþegn á Nýju Íslandi og vonandi betra.

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • ...winter
  • ...picture1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband